top of page

Nærandi slökun og djúp ró

fim., 19. mar.

|

44P9+CM4

Langar þig að slaka virkilega á – ekki bara í líkamanum, heldur í sjálfri sál þinni? Í þessu öndunarferðalagi færðu tækifæri til að stíga út úr daglegu amstri og tengjast kyrrðinni sem býr innra með okkur öllum.

Nærandi slökun og djúp ró
Nærandi slökun og djúp ró

Time & Location

19. mar. 2026, 17:15

44P9+CM4, 44P9+CM4, Síðumúli 6, 108 Reykjavík, Iceland

Guests

About The Event

Mig langar að bjóða þér að koma í ferðalag í gegnum öndun þar sem áhersla er á djúpa og góða slökun.

Langar þig að slaka virkilega á – ekki bara í líkamanum, heldur í sjálfri sál þinni?

Við lifum í heimi þar sem hraðinn ræður, áreiti er stöðugt og margir hafa gleymt hvernig það er að slaka alvöru á.


Í þessu öndunarferðalagi færðu tækifæri til að stíga út úr daglegu amstri og tengjast kyrrðinni sem býr innra með þér – hinni djúpu, nærandi kyrrð sem er alltaf til staðar, ef við gefum okkur tíma til að mæta henni.

Í ferðalaginu leggjum við áherslu á:


Meðvitaða, leidda öndun


Tónheilun, kyrrð og mjúka nærveru


Rými til að sleppa tökum og fylla á

Þetta er ferðalag fyrir alla – hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í öndun eða ert reyndur ferðalangur.


Þú þarft ekkert að kunna – einungis að mæta og treysta.

Með því að gefa þér leyfi til að slaka djúpt á getur þú endurstilt taugakerfið, róað hugann og vakið innri frið – jafnvel upplifað djúpa innsýn og létti.


Koma í þægilegum fötum.

Með vatnsbrúsa.

Með opið hjarta.


Mæli ég einnig með því að vera ekki búin að borða þunga máltíð fyrir öndunina og halda kaffi drykkju í lágmarki.


Reikna má með uþb 1, 5 klst í viðburðinn.


Tíminn kostar 5 þúsund kr,

Þið tryggið ykkur pláss með því að ganga frá greiðslu inná kt 550825-0310

Reikningur 517-26-220

A.T.H tíminn er ekki endurgreiddur ef forföll eru boðuð og minna en 24 klst eru í tímann.


Ef þig langar að koma en átt ekki peninga núna sendu mér línu og við finnum lausn á því.


Sendu endilega skilaboð fyrir frekari upplýsingar.


Vonast til að sjá þig

Share This Event

SÍMI: +354 618 1582
EMAIL: nirvanaondun@gmail.com

bottom of page